Aðalfundur ELDINGAR á sunnudaginn kemur


Elding – félag smábátaeigenda í Ísafjarðarsýslum
– er fyrst svæðisfélaga Landssambands smábátaeigenda til að boða til
aðalfundar.  Fundurinn verður haldinn
í Guðmundarbúð (björgunarhúsinu á Ísafirði) nk. sunnudag, 19. september og
hefst kl 14:00.

 

Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða lagðar
fram tillögur til 26. aðalfundar LS.

Félagar í Eldingu eru hvattir til að fjölmenna á
fundinn og hafa þannig áhrif á stefnu félagsins í málefnum smábátaeigenda.

 

 Formaður Eldingar er Birkir Einarsson.