Aðalfundir – Skalli, Báran, Snæfell og Hrollaugur


Tími aðalfunda er runninn upp.  Á næstu dögum verða haldnir aðalfundir
í fjórum svæðifélögum LS.


Skalli – félag smábátaeigenda Hvammstangi –
Siglufjörður

24. september verður aðalfundur Skalla.  Fundurinn verður að venju haldinn á
Sauðárkróki og hefst kl 14:00.  
Formaður Skalla er Sverrir Sveinsson Siglufirði.

 

Báran – félag smábátaeigenda í Hafnarfirði og
Garðabæ

25. september blæs Báran til aðalfundar.  Fundurinn hefst kl 10:00 í
Kænunni.  Formaður Bárunnar er Jón
Breiðfjörð Höskuldsson.

 

Snæfell – félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi

26. september verður aðalfundur Snæfells.  Hann verður haldinn á Hótel Framnesi
Grundarfirði og hefst kl. 17:00.  
Formaður Snæfells er Alexander Kristinsson Rifi.

 

Hrollaugur – félag smábátaeigenda á Hornafirði

27. september funda Hornfirðingar.  Aðalfundur Hrollaugs verður í Nýheimum
og hefst kl 20:00.   Formaður
Hrollaugs er Arnar Þór Ragnarsson.

 

Formaður LS og framkvæmdastjóri munu mæta á
alla fundina.

 

Félagsmenn Skalla, Bárunnar, Snæfells og
Hrollaugs eru hvattir til að fjölmenna á fundina og hafa þannig áhrif á það sem
samþykkt verður að beina til 26. aðalfundar LS.


Aðalfundur LS verður í Turninum í Kópavogi 14.
og 15. október.