Aðalfundur Eldingar var haldinn á Ísafirði sl
sunnudag. Fundurinn var vel sóttur
og umræður góðar og málefnalegar.
Meðal tillagna sem aðalfundur Eldingar
samþykkti til umfjöllunar á 26. aðalfundi Landssambands smábátaeigenda 14. og
15. október voru:
·
Hámarksstærð báta í krókaaflamarkskerfi
verði aukin í allt að 15 m að mestu lengd.
·
Kvótaþak í krókaaflamarkskerfi verði lyft
þannig að stærstu handhafar heimilda í kerfinu 1. september 2010 rúmist innan
markanna.
·
Framkvæmdastjóra LS verði falið að kanna
kosti þess og galla að stofna lífeyrissjóð smábátasjómanna.
·
Tafarlaust verði aukið við aflaheimildir
í þorski, að lágmarki 60 þús. tonn.
·
Að langa, karfi og keila verði
skilgreindar sem meðafli við krókaveiðar.
·
Skötuselur verði skilgreindur sem meðafli
við grásleppuveiðar.
Á fundinum tilkynnti Kristján Andri Guðjónsson
að hann gæfi ekki lengur kost á sér sem fulltrúi félagsins í stjórn LS. Guðmundur Halldórsson, hin aldna
kempa, var kosinn í hans stað.
Ný stjórn Eldingar var einnig kosin á
fundinum. Formaður Eldingar er
Sigurður Kjartan Hálfdánsson Bolungarvík og með honum í stjórn eru eftirtaldir:
Gunnlaugur Finnbogason Ísafirði
Þórður Sigurðsson Suðureyri
Hjalti Proppé Þingeyri
Karl Kjartansson Súðavík
Sigurður Garðarsson Flateyri