Aðalfundir svæðisfélaga – Árborg, Reykjavík, Reykjanes, Klettur, Fontur og Austurland


 Svæðisfélög LS halda áfram að boða til
aðalfunda.  Næstu fundir eru:


Árborg – aðalfundur félagsins þriðjudaginn 28.
september.  Fundurinn verður í
Rauða húsinu á Eyrarbakka og hefst kl 20:00.


Reykjavík – aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur verður haldinn í kaffistofu félagsins í Suðurbugt (Verbúð 5) miðvikudaginn 29. september.  Fundurinn hefst kl 20:00.  Vakin er athygli á að meðal þess sem er á dagskrá fundarins eru lagabreytingar.


Reykjanes – aðalfundurinn verður í Salthúsinu í
Grindavík nk. föstudag 1. október.  
Hann hefst kl 17:00.
 


Klettur – heldur aðalfund sinn á Húsavík
laugardaginn 2. október.  Fundurinn
verður í Sölku og hefst kl 11:00.


Fontur – aðalfundur félagsins verður í Eyrinni
á Þórshöfn mánudaginn 4. október. 
Fundurinn hefst kl 17:00.


Félag smábátaeigenda á Austurlandi verður á
Icelandair Hótelinu á Egilsstöðum þriðjudaginn 5. október.  Fundurinn hefst kl 16:00.

 

Smábátaeigendur er hvattir til að fjölmenna til
fundanna, taka þátt í umræðum koma sjónarmiðum sínum á framfæri.