Aðalfundur Skalla – ákvarðanir Jóns Bjarnasonar hafa hleypt lífi í sjávarbyggðir landsins


Skalli – félag smábátaeigenda á Norðurlandi
vestra hélt aðalfund sinn 24. september sl.  Fundurinn var vel sóttur og umræður góðar um fjölmörg
málefni sem brenna á smábátaeigendum.

 Skall 1.jpg

Fundurinn fagnaði banni við dragnótaveiðum í
Skagafirði og samþykktu af því tilefni eftirfarandi ályktun:

Aðalfundur
Smábátafélagsins Skalla haldinn 24. september 2010 fagnar reglugerð útgefinni
31. ágúst 2010 nr. 0-20-678 sem bannar dragnótaveiðar innan línu sem dregin er
frá Þórðarhöfða í Ásnef í Skagafirði, frá 31. des. 2010 til ágúst 2015.                  

Fundurinn beinir þeim tilmælum
til sjávarútvegsráðherra að strax við útfærsluna verði hafnar stöðugar
rannsóknir á lífríki svæða sem friðuð verða fyrir dragnótaveiðum, þannig að úr
því fáist skorið í eitt skipti fyrir öll hvort um skaðsemi þessa veiðarfæris á
lífríkið er að ræða.“

Hugmyndir
ríkisstjórnarinnar um frekari sameiningu ráðuneyta var einnig rædd og því beint
til stjórnvalda að vegna mikilvægis sjávarútvegsins væri ekki raunhæft að
sameina sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarráðuneytið í eitt ráðuneyti.

Skalli 2.jpg

Aðalfundur
Skalla samþykkti að lýsa fullum stuðningi við Jón Bjarnason sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.  Í ályktun
þess efnis segir:

„Með
starfi sínu hafi Jón Bjarnason tekið ákvarðanir sem hleypt hafa lífi í
sjávarbyggðir landsins og stuðlað að meiri friði um fiskveiðistjórn en verið
hefur um langt skeið, m.a. með skipun starfshóps til endurskoðunar á
fyrirkomulagi fiskveiðistjórnunar“.

 

Stjórn Skalla var einróma endurkjörinn en hana
skipa:

Sverrir Sveinsson                        Siglufirði                        formaður

Eðvald Daníelsson                      Hvammstanga             varaformaður

Steinn Rögnvaldsson                  Hrauni                           gjaldkeri

Sigurjón Guðbjartsson                Skagaströnd                 meðstjórnandi

Steinar Skarphéðinsson             Sauðárkróki                  meðstjórnandi