Aðalfundur Hrollaugs – vill takmarka línuívilnun við 18 klst.


Aðalfundur Hrollaugs 2010 var að venju haldinn
27. september.  Fundurinn var í
Nýheimum, menningarmiðstöð Hornfirðinga.  
Fjölmörg málefni smábátaútgerðarinnar komu til
umræðu á fundinum.  Úr þeim jarðvegi
voru samþykktar tillögur til aðalfundar LS.


  • LS beiti sér fyrir
    því að makrílrannsóknir verði stórauknar og þá sérlega magn hans og fæðuval upp
    við strendur landsins.

Í greinargerð með tillögunni segir; að á haustmánuðum hafi orðið talsvert vart við makríl
inná fjörðum og flóum á Austur- og Norðurlandi.  Lítið hefur verið kannað
um hversu mikið magn er að ræða og hvað hann er að éta.


  • LS safni upplýsingum um hversu
    mikið magn af grásleppu er landað sem meðalafla á uppsjávarveiðiskipum.

Í umræðu með þessari samþykkt
kom fram að vísbendingar séu um að umtalsvert magn af grásleppu slæðist með í
flottroll við síldar- og makrílveiðar.



Fundarmenn voru einhuga um að skora á sjávarútvegsráðherra
að auka þorskkvótann um 0-0-40 tonn.

 

Auk þessa var ályktað um að LS
beiti sér fyrir því að:

  • handfæraívilnun verði komið
    á
  • línuívilnun nái jafnt til
    allra dragróðrabáta
  • byggðakvóti verði tekinn inn
    í línuívilnunarpottinn
  • tími verði styttur á
    línuívilnun úr 24 klst. í 18 klst.

 


Stjórn Hrollaugs skipa
eftirtaldir:

            Arnar
Þór Ragnarsson formaður

            Unnsteinn
Þráinsson gjaldkeri

            Elvar
Unnsteinsson ritari

,