Aðalfundur Kletts hvetur til hópmálsóknar

 

Aðalfundur Kletts var haldinn á Húsavík sl.
laugardag 2. október. 
Fundarstaðurinn var gamla kaupfélagshúsið sem nú inniheldur
veitingastaðinn Sölku.  Vel var
mætt á fundinn – fundarmenn frá Ólafsfirði til Tjörness.

Fjölmörg málefni bar á góma á fundinum og
fjöldi ályktana afgreiddur til 26. aðalfundar Landssambands
smábátaeigenda.  Meðal þeirra var
hvatning aðalfundar Kletts til LS að standa vörð um hagsmuni smábátaútgerða í
viðskiptum sínum við lánastofnanir með hópmálsókn.

 

Klettur 2010.jpg

Handfæraívilnun
á ufsa

Aðalfundur Kletts hvetur sjávarútvegsráðherra
til að gefa ufsaveiðar á handfæri frjálsar tímabilið 1. maí til 30. september.

 

Stærð
krókaaflamarksbáta, kvótaþak

Á aðalfundi Kletts var mikil umræða um
stærðarmörk krókaaflamarksbáta, mælingareglur og hámark á
krókaflahlutdeild.  Fundarmenn voru
almennt á því að samræma þyrfti mælingu og gera hana einfaldari.  Þá var það skoðun fundarins að
núgildandi stærð krókaaflamarksbáta gæfi ekki tilefni til breytinga.  Að loknum umræðum var eftirfarandi
samþykkt:

Aðalfundur Kletts telur enga þörf á breytingum
á stærð krókaaflamarksbáta.

Aðalfundur Kletts skorar á sjávarútvegsráðherra
að kvika hvergi frá þeim takmörkunum sem eru í dag á hámarkseign kvóta einstakra
útgerða.

 

Klettur 2010-.jpg

Lögskráningu
verði frestað um eitt ár –
áskorun til samgönguráðherra

 

Brýnt
að auka fjárveitingu til Slysavarnaskóla sjómanna

áskorun til samgönguráðherra að hlutast til um að þau slysavarnanámskeið sem
krafist verði við lögskráningu á smábáta verði staðfærð á smábáta og uppsett
þannig að hægt sé að fara með þau út um land.

 

Ýsuveiðar
frjálsar til áramóta –
aðalfundur Kletts skorar á
sjávarútvegsráðherra að gefa ýsuveiðar frjálsar til næstu áramóta.

 

Hér er aðeins minnst á nokkrar af þeim tillögum
sem aðalfundur Kletts samþykkti.

 

Stjórn Kletts var öll endurkjörin, en hana
skipa:

Pétur Sigurðsson                         Árskógssandi
            formaður

Sigfús Jóhannesson                   Grímsey

Jón Kristjánsson                         Akureyri

Sigurður Kristjánsson                Húsavík

Þröstur Jóhannsson                   Hrísey