Aðalfundir Sæljóns, Króks og Stranda


Svæðisfélög LS eru óðum að klára aðalfundi
sína.  Fundirnir hafa gengið vel,
mikill baráttuandi í trillukörlum og þeir staðráðnir í að vinna saman að bættu
og öruggara starfsumhverfi.

Eftirfarandi aðalfundir hafa verið settir á
dagskrá:


Sæljón

Aðalfundur Sæljóns – félags smábátaeigenda á
Akranesi – verður haldinn í Jónsbúð föstudaginn 8. október.   Fundurinn hefst kl 20:00.

 

Krókur

Aðalfundur Króks verður haldinn í Þorpinu á
Patreksfirði nk sunnudag 10. október. 
Fundurinn hefst kl 13:00.

 

Strandir

Aðalfundur Stranda verður haldinn í Slysavarnafélagshúsinu
á Hólmavík nk. sunnudag 10. október. 
Fundurinn hefst kl 20:00.

 

Formaður LS og framkvæmdastjóri munu mæta á
alla fundina.

Félagsmenn Sæljóns, Króks og Stranda eru
hvattir til að fjölmenna á fundina og hafa þannig áhrif á það sem samþykkt
verður að beina til 26. aðalfundar LS.