Veiðigjald fyrir grásleppuhrogn


Eigendur grásleppubáta hafa á undanförnum dögum
fengið bréf frá Fiskistofu um innheimtu veiðigjalds fyrir grásleppuhrogn.  Vegna mistaka láðist að reikna gjaldið í
upphafi fiskveiðiárs og senda út innheimtuseðil. 

 

Krafa fyrir öllu veiðigjaldinu hefur verið sett
á heimabanka hvers og eins aðila.  Vakin
er athygli á að hægt er að greiða gjaldið með þremur jöfnum greiðslum.  Kjósi aðilar að hafa þann háttinn á
verða þeir senda tölvupóst þess efnis til Fiskistofu:  

                   karitas@fiskistofa.is

                  
marin@fiskistofa.is

 

Nauðsynlegt er í bréfinu að tilgreina skipaskrárnúmer
og kennitölu viðkomandi.