Lífeyrissjóður smábátasjómanna?


Á aðalfundi LS var töluverð umræða um stöðu
lífeyrissjóða.  Framkvæmdastjóri LS
kom inn á málefnið í ræðu sinni á fundinum þar sem hann vék að málefnum Gildis
lífeyrissjóðs.

 

Hann skýrði frá fundi stjórnar LS þar sem mikil
og þung umræða hefði farið fram um afkomu Gildis lífeyrissjóðs.  Stjórnin hefði lýst áhyggjum sínum yfir
stöðu sjóðsins.  Framkvæmdastjóri
lýsti upplifun sinni á aðalfundi Gildis þar sem hann hefði ekki greint
gagnrýna hugsun hjá þv. stjórnarformanni sjóðsins Vilhjálmi Egilssyni um að
stjórn sjóðsins hefði ekki staðið sig nægjanlega vel. 


Þá
upplifði ég heldur ekki að stjórn sjóðsins hefði áhuga á að gera ársfundi opnari, þ.e. að allir sjóðfélagar hefðu atkvæðisrétt.   Það var í sjálfu sér ömurleg tilfinning að sitja
fundinn bæði sem sjóðfélagi og fulltrúi hundruða sjóðfélaga og hafa ekki
atkvæðisrétt.“ sagi Örn Pálsson í innleggi sínu til aðalfundar LS.


Í ræðu sinni sagðist Örn hafa upplýst stjórn LS
um spurningar frá sér á ársfundi Gildis og svörum sjóðsins.  Hann vék sérstaklega að einum þætti
þess málefnis:


„Hver er skýring
þess að Gildi lífeyrissjóður lánaði Glitni hf, banka í einkarekstri, víkjandi lán
að upphæð 3,69 milljarðar?

Hver eða
hverjir tóku ákvörðun um þetta lán, hver eða hverjir bera ábyrgðina og hvað lá
til grundvallar ákvörðuninni.  Hvað
gekk mönnum til?  

Svar sjóðsins
var eftirfarandi:

„Í mars
2008 keypti Gildi breytanlegt/víkjandi skuldabréf af Glitni banka fyrir 3
milljarða króna.  Stjórn sjóðsins,
framkvæmdastjóri og forstöðumaður eignastýringar tóku ákvörðun um kaupin á
grundvelli þeirra upplýsinga sem þá lágu fyrir um stöðu bankans.  Sjóðurinn telur nú í ljósi þeirra
upplýsinga sem fram hafa komið eftir fall bankans að stjórnendur hans hafi
gefið rangar upplýsingar um stöðuna. 
Sjóðurinn rekur nú dómsmál til að fá skuldabréf þetta metið sem almenna
kröfu í þrotabú bankans.  Einnig
verður skoðað hvort höfðað verður skaðabótamál á hendur stjórnendum bankans.“


Hér
eru menn með allt niðrum sig, alvarleg mistök hafa verið gerð, kallað er eftir
ábyrgð stjórnarinnar.“ sagði Örn.

Þá sagði hann að við skoðun á ársreikningum
Gildis lífeyrissjóðs fyrir árin 2008 og 2009 gæti svo farið að eignir sjóðsins
rýrni um alls 70 milljarða ef ekkert innheimtist sem gerð væri krafa til, það
jafngildir iðgjöldum sjóðfélaga í tvo áratugi.


Örn sagði stjórn LS einhuga um að stjórn Gildis
ætti tafarlaust að segja af sér.  Þá
upplýsti hann að það sjónarmið hefði einnig komið fram að rétt væri að stofna séreignasjóð
sem greitt yrði í þar til línur færu að skýrast.   Á tilvitnuðum stjórnarfundi var framkvæmdastjóra veitt
heimild til að krefjast þess í nafni stjórnar LS að stjórnarmenn sem voru í stjórn
Gildis lífeyrissjóðs 2007 og 2008 og sitja þar enn segi af sér.  Greiðslum frá félagsmönnum verði
frestað þar til viðkomandi hafai stigið til hliðar.

 Örn sagði vinnu við þetta mál hafa dregist en
verkefnið væri hafið.

 

Um lífeyrissjóðsmál samþykkti aðalfundur LS
eftirfarandi:

 „Framkvæmdastjóra
LS falið að kanna kosti þess og galla að stofna lífeyrissjóð smábátasjómanna.“

,

,