Ýsuafli krókaaflamarksbáta að nálgast helming úthlutaðra heimilda


Krókaaflamarksbátar
hafa veitt 3-5-4 tonn af ýsu það sem af er fiskveiðiárinu, sem er 47% af
úthlutuðum heimildum.  Alls hafa
þeir bætt við sig 625 tonnum með því að leigja heimildir úr aflamarkskerfinu,
en á sl. fiskveiðiári juku þeir ýsuheimildir sínar um alls 4-7-2 tonnum með
leigu úr stærra kerfinu. 

LS hefur hvatt
sjávarútvegsráðherra til að bregðast strax við þeim vandræðum sem komin eru upp
á leigumarkaðinum, m.a. með því að ýsa hjá smábátum sem veidd er á línu
reiknist aðeins að hálfu til afla / krókaaflamarks fram að áramótum.