Útflutningsverðmæti saltaðra grásleppuhrogna eykst um milljarð


Á fyrstu níu mánuðum ársins hafa verið flutt út
söltuð grásleppuhrogn fyrir rúma 1,8 milljarða.  Þetta er einum milljarði meira í útflutningsverðmæti en á
sama tíma í fyrra.  Rúmlega
níuþúsund tunnur eru á bakvið verðmætin nú sem er meira en helmingsaukning frá
sl. ári. 


Verðhækkun milli ára í krónum talið er 44%.


78% útflutningsins fór til Danmerkur og Þýskalands, nánast sama magn til hvors lands.

 

 

Unnið upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands