200 tonna aukning í skötusel


Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
hefur ákveðið að hækka heildaraflamark í skötusel um 200 tonn sem kemur til ráðstöfunar nú í desember.

Samkvæmt frétt ráðuneytisins skulu umsóknir
berast til Fiskistofu fyrir 10. desember og er verð á aflaheimildum 120 kr.