Fiskmarkaðsverð á þorski og ýsu óbreytt á fyrsta ársfjórðungi


Á fyrsta ársfjórðungi fiskveiðársins er
meðalverð á ýsu sem seld var á fiskmörkuðum óbreytt frá sama tíma í fyrra 250
kr/kg.  Óverulegar breytingar eru á
þorskinum 322 í ár en 320 kr meðalverð sept – nóv 2009.

Í ár hafa verið seld rúm sexþúsund tonn af
þorski á mörkuðunum sem er um fimm hundruð tonnum minna en í fyrra.  Magnið hefur einnig minnkað í ýsunni,
eins og gera mátti ráð fyrir í kjölfar minni úthlutunar.  Þar er samdrátturinn 14% milli ára,
minnkar um 879 tonn niður í 9-2-5 tonn.

Athygli vekur að á yfirstandandi fiskveiðiári
hefur mun meira verið selt af undirmálsýsu á fiskmörkuðunum en í fyrra.  Fyrsti ársfjórðungurinn skilaði 626
tonnum sem er 46% aukning frá sama tíma í fyrra.   Óverulegur
munur er á magni þorsks sem undirmáli milli ára.    Hlutfall undirmáls af heildarafla sem seldur hefur
verið er nánast það sama í báðum tegundum, 11,8% í ýsunni og 11,9% í þorskinum.  


Unnið upp úr tölum rsf.is




,

,