Grásleppuvertíðin 2010 sú besta í rúma tvo áratugi


Heildarafli á grásleppuvertíðinni 2010 svaraði
til 7-9-17 tunna af söltuðum hrognum. 
Fara þarf aftur til ársins 1987 til að finna viðlíka veiði.  Afkoma flestra sem stunduðu veiðarnar
var góð, hátt verð á hrognunum og meðalveiði á bát 52 tunnur sem er rúmum
fjórðungi meira en á síðustu vertíð.

Alls stunduðu 344 bátar veiðarnar á vertíðinni
sem var 65 bátum fleira en 2009 og 115 fleiri en á vertíðinni 2008.

Af einstökum veiðisvæðum var langmest veiði í
Breiðafirði 0-4-5 tunnur eða 30% heildarveiðinnar.  Mestu var landað í Stykkishólmi 6-7-2 tunnur og næst hæsti
löndunarstaðurinn var Brjánslækur með 1-4-1 tunnu og í þriðja sæti Akranes með
7-3-1 tunnur.