Skortur á ýsu stöðvar veiðar á Borgarfirði Eystri”


Enn á ný berast fréttir af því að skortur á ýsu
stöðvi veiðar.  Þeir sex bátar sem
gerðir eru út frá Borgarfirði Eystri verða trúlega bundnir við bryggju þar þar til tekst að fá leigðar veiðiheimildir í ýsu. 

Ýsugengd á veiðislóð þeirra Borgfirðinga er
mjög mikil og útilokað að veiða þorsk öðru vísi en að fá ýsu með.  Þriðjungs niðurskurður varð í veiðiheimildum
á ýsu á fiskveiðiárinu sem er á sama tíma og ýsa á miðunum eykst.

Þetta og fleira kemur fram í viðtali RÚV, við Ólaf
Hallgrímsson formann Félags smábátaeigenda á Austurlandi.

 

Sjá viðtalið í heild