Þorskurinn kemur vel út í haustralli


Hafrannsóknastofnun hefur birt niðurstöður úr
haustralli.  Heildarvísitala mældist
fimmtungi hærri en 2009 og er vísitalan sú hæsta frá því farið var að mæla hana
1996.

Árgangar 2004, 2005 og 2006 sem allir sýndu slaka
nýliðun hafa þroskast vel og er meðalþyngd þeirra sú mesta sem mælst hefur á
4ra, 5 og 6 ára fiski frá 2003. 
Eru það sérlega ánægjuleg tíðindi þar sem þeir koma til með að bera uppi
veiðina þar til árgangar 2008 (2 ára) 2009 (1 árs) koma inn í veiðarnar 2012 og
2013, en vísitala (fjöldi) þeirra eru þær hæstu sem mælst hafa í
haustralli.  

 

Sjá nánar eftirfarandi úr skýrslu Hafrannsóknastofnunarinnar.

http://www.hafro.is/undir.php?ID=19&nanar=1REF=3&fID=7-9-1

Þorskur.png