Ársaflinn yfir milljón tonn

 

Heildaraflinn á síðasta ári varð 1.065 þús tonn sem er 6%
minna en á árinu 2009.  

Uppsjávartegundirnar síld, loðna, kolmunni og makríll
voru 54% af heildaraflanum eða 580 þús tonn sem er nánast jafnmikið og veiddist
í þessum tegundum 2009.  Mest var veitt
af síld 254 þús. tonn. 

Heildarafli í þorski varð 177,7 þús. tonn sem er 6% minna
en 2009.  Af ýsu veiddust 64,8 þús. tonn
sem er rúmlega fimmtungi minna en 2009. 
Steinbítsaflinn endaði í 12,6 þús tonnum, rúmlega 17% minna en
2009.  Sömu sögu er að segja af ufsanum
þar var samdrátturinn 12,5%, en alls veiddust 53,7 þúsund tonn af honum.

 

Unnið upp úr bráðabirgðatölum Fiskistofu.