GSM-kerfið dekkar NMT að langstærstum hluta


Í skýrslu Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra, sem dreift hefur verið á Alþingi, og fjallar um
framkvæmd fjarskiptaáætlunar er m.a. fjallað um arftaka NMT-kerfisins.

Fjarskiptaáætlun 2005-2010 var samþykkt á Alþingi 9.
desember 2005.  Í skýrslu ráðherrans er
einkum gerð grein fyrir framvindu áætlunarinnar sem lítur að vinnu að framkvæmd
á markmiðum hennar árin 2009 og 2010.

 

Í áætluninni var gert ráð fyrir að langdræg stafræn
farsímaþjónusta stæði til boða um allt land og á miðum við landið eftir að Síminn
hætti rekstri NMT-kerfisins 1. september 2010. 
Raunin er sú að bæði Síminn og Vodafone hafa unnið að því að stækka verulega
þjónustusvæði GSM kerfa sinna. 
Fyrirtækin bjóða nú þjónustu á langstærsta hluta þess svæðis sem NMT kerfið þjónaði, segir í
skýrslu um framkvæmd fjarskiptaáætlunar.


Öll skýrslan