Hlutdeildarýsan uppurin hjá krókaaflamarksbátum

 

Hlutdeild krókaaflamarksbáta í ýsu er 15,1% sem skilaði þeim 5.909 tonnum í
aflamark.  Athygli vekur að nú þegar
aðeins eru liðnir rúmir fimm mánuðir af fiskveiðiárinu hafa þeir veitt 6.165 tonn eða 256 tonnum umfram hlutdeildarúthlutunina.  


Ýsuafli krókaaflamarksbáta er rúm 34% af heildarýsuaflanum það sem af
er fiskveiðiárinu.


Þrátt fyrir stirðleika á leigumarkaðinum hafa
krókaaflamarksbátar fært til sín 1.801 tonn af ýsu frá aflamarksskipum.