Útflutningsverðmæti sjávarafurða 220,4 milljarðar


Á
síðasta ári nam útflutningsverðmæti sjávarafurða 220,4 milljörðum.  Upphæðin svarar til 39,3% af
heildarútflutningsverðmæti þjóðarinnar.  

Eins og áður er þorskur langverðmætastur, 32,9% af útflutningsverðmæti
sjávarafurða.  
Útflutningsverðmæti hans
nam 72,4 milljörðum á árinu 2010 sem er 8,7% af heildarútflutningsverðmæti
landsmanna.

 

 

Unnið
úr gögnum frá Hagstofu Íslands