Loðnukvótinn aukinn um 20% – kemur ekki á óvart


Við
mælingar á stærð loðnustofnsins sem hófust 4. febrúar sl. kom í ljós að
stofninn er stærri en fyrri mælingar bentu til. 
Fylgst var með loðnugöngum við austan- og sunnanvert landið og mældist
veiðistofninn 608 þúsund tonn af kynþroska loðnu.  Þegar tekið er tillit til veiða er
veiðistofninn því 788 þúsund tonn sem er rúmum 60 þús. tonnum meira en hann
mældist í byrjun janúar.

Á
grundvelli þessara mælinga hefur útgefinn veiðikvóti verið aukinn um 65 þúsund
tonn í 390 þúsund tonn.

Að sögn smábátaeigenda á
A- og S-landi kemur aukningin þeim ekki á óvart.  Þeir telja nú vera mun meira magn af loðnu á
ferðinni heldur en undanfarin ár og vitna þá til viðbragða þorsksins.  Hann hafi í smátíma fúlsað við þeim kræsingum
sem línan hefur boðið honum uppá.  
Nokkur ár séu frá því það gerðist.

Picture 7.png