LS mótmælir hugmyndum um að skylda slægingu úti á sjó


LS
hefur sent inn athugasemdir við hugmyndir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um breyttar vigtarreglur,
ísprósentu og slægingarstuðla.  Í megin
atriðum er LS andvígt tillögunum.

 

Meðal
þess sem fram kemur í athugasemdum LS er að félagið er sammála því að
ísprósenta dagróðrabáta, þegar vigtað er á hafnarvog verði hækkuð, það tryggir
enn betur að fiskurinn verði nægilega kældur og gæði tryggð.

 

LS
mótmælir harðlega öllum hugmyndum um breytingar á slægingarstuðli svo og
þvingunaraðgerðum um að landa afla dagróðrabáta slægðum.

 

 

Sjá  Aths. LS v. drög Vigtun.pdf

 

Sjá
fyrri umfjöllun um málefnið