Jón Bjarnason sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um
hrognkelsaveiðar. Helstu breytingar eru:
- að hvert
veiðileyfi gildir nú í 50 daga í stað 62 á síðustu vertíð
- óheimilt verður
að hefja veiðar með yfirtöku hrognkelsaneta í sjó, sem leiðir til þess að aðili
sem er með fleiri en einn bát við veiðarnar þarf að taka netin upp og ganga frá
merkingum í landi hyggist hann nota sömu net
- upphafsdagur veiða
á svæði F, hann verður 15. mars í stað 10. í fyrra.
Aðrar
breytingar eru minniháttar.