Grásleppuhrogn – Norðmenn setja lágmarksverð


Norðmenn
hafa ákveðið að lágmarksverð á grásleppuhrognum (blaut hrogn) skuli vera 39,00
Nkr.  Það er 10% hækkun frá því í fyrra í
Nkr og rúmlega 13% hækkun í evrum.

Á
fundi kaupenda og seljenda varð ekki eining um verð og ákvað því Norges
Råfisklag á grundvelli upplýsinga á fundinum verðið.