VS – afli, meðafli við grásleppuveiðar


Í
kjölfar frétta af mikilli þorskgengd á grunnslóð fyrir Norðausturlandi með
tilheyrandi vandræðum við grásleppuveiðar er rétt að minna á tilkynningu
Fiskistofu um VS-afla.

 

„Samkvæmt umræddri reglu skal sá hluti
sem þannig reiknast ekki til aflamarks þó aldrei nema meira en 5% af
botnfiskafla sem hlutaðeigandi skip veiðir á hverju fiskveiðiári. Heimildin er
bundin þeim skilyrðum að aflanum sé haldið aðskyldum frá öðrum afla og hann
veginn sérstaklega og að aflinn sé seldur á viðurkenndum
uppboðsmarkaði.  

Til að reikna út viðmið vegna
grásleppuhrogna þarf að byrja á því að reikna þyngd grásleppu út frá þyngd
hrognanna, en það er gert með því að deila í þunga hrognanna með 0,3.

5% af þeim þunga (hrogn/0,3) er það magn
af óslægðum fiski sem landa má sem VS-afla. 

Hér fyrir neðan er tekið dæmi um aðila
sem veitt hefur 600 kg af grásleppuhrognum og vigtar og skráir þau á hafnarvog.

600 kg hrogn / 0,3 = 2000 kg heil
grásleppa. (óslægð)

2000 kg heil grásleppa x 0,05 = 100 kg
(óslægður fiskur).

Til einföldunar má deila í magn
grásleppuhrogna með 6 og þá fæst við það sama niðurstaða.

Uppgjör VS-afla er í lok hvers fiskveiðiárs þ.e. ekki er gert upp m.v. einstaka veiðiferð.