Smábátaeigendur á Húsavík boðaðir til fundar


Klettur
– félag smábátaeigenda á N-landi eystra – boðar félagsmenn sína á Húsavík til
fundar á morgun mánudaginn 11. apríl kl 20:00.   Á fundinum verða kynnt samningsdrög milli Kletts
og Framsýnar.

 

Pétur
Sigurðsson formaður Kletts mun kynna drögin og hvetur hann alla félagsmenn á
Húsavík að mæta til fundarins, taka þátt í umræðum og afgreiðslu.

 

Fundurinn
verður haldinn í húsi Framsýnar Garðarsbraut 26.