Landsbankinn dæmdur til að leiðrétta lán

 

Í dag féll dómur í Hæstarétti í máli Landsbankans hf. gegn þrotabúi Motormax ehf.  Tekist var á um kröfu
bankans um greiðslu á lánsupphæð, þar sem bankinn hafði túlkað lánið
gengistryggt erlent lán en skiptastjóri fyrirtækisins sagði að teknar hefðu
verið krónur að láni og því óheimilt að verðtryggja með gengi erlendra
gjaldmiðla.

Lánið, kr. 150 milljónir, var tekið 30. mars 2007 til 5
ára.  Krafa Landsbankans var að fjárhæð
275,9 milljónir.  Þeirri kröfu mótmælti skiptastjóri
þrotabúsins og taldi hana vera 167,9 milljónir.   Máli sínu til stuðnings vitnaði hann til dóma
Hæstaréttar frá 16. júní og 16. september 2010.

Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 26. nóvember
2010 og úrskurðaði dómurinn í málinu tæpum þremur mánuðum síðar.  Hann féllst á kröfu skiptastjóra Motormax ehf
að óheimilt hafi verið að verðtryggja lánið með því að binda það við gengi
erlendra gjaldmiðla.

Landsbankinn hf. kærði úrskurð Héraðsdóms til Hæstaréttar
sem í dag staðfesti úrskurð Héraðsdóms.

 

Á aðalfundi LS í otóber sl. skýrði Örn Pálsson
framkvæmdastjóri frá því að á fundi með Landsbankanum hefði honum verið greint
frá því að það væri mat bankans að lán sem lánuð voru til fyrirtækja þar með
talið smábátaútgerðarinnar féllu ekki undir dóm Hæstaréttar frá 16. júní
2010. 

Nú hefur Hæstiréttur hins vegar komist að annarri niðurstöðu
sem smábátaeigendur fagna þar sem ljóst er að margir þeirra munu nú loksins fá
leiðréttingu sinna mála.

Það er von LS að dómurinn hrindi af stað alsherjar
leiðréttingu lána hjá öðrum lánastofnunum þar sem lán hafa verið greidd út í
krónum.


Dómur Hæstaréttar