Nýlegar
breytingar á lögum um stjórn fiskveiða gera það að verkun að strandveiðibátar á
svæði A geta aftur komið til veiða nk. þriðjudag. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnðarráðherra
hefur fellt út gildi auglýsingu sem bannaði strandveiðibátum á svæð A veiðar
frá 10. júní til mánaðarmóta.
Með reglugerð
hefur ráðherrann ákveðið að 1.900 tonn af þorski og 600 tonn af ufsa, sem koma
til viðbótar áðurákveðinni aflaviðmiðun strandveiðibáta, skuli deilast á veiðisvæðin
í sömu hlutföllum og þau 6.000 tonn sem var til viðmiðunar hjá strandveiðbátum.
Í júní verður
viðbótin sem hér segir:
Svæði A þorskur 211 tonn og ufsi 67 tonn
Svæði B þorskur 150 tonn og ufsi 47 tonn
Svæði C þorskur 162 tonn og ufsi 51 tonn
Svæði D þorskur 110 tonn og ufsi 35 tonn
Sjá nánar:
Reglugerð um
breytingu á reglugerð um strandveiðar
Fréttatilkynning
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins.