Mikilvægi góðrar aflameðferðar – námskeiðin vel sótt


Í
apríl og maí sl. hélt Matís í samstarfi við LS námskeið um bætta
aflameðferð.  Alls urðu námskeiðin 13
talsins og var góður rómur gerður að þeim fróðleik sem sérfræðingar Matís
miðluðu til þátttakenda.


Þátttaka
var víðast hvar góð alls um 100 aðilar sem sóttu námskeiðin.  Í lok hvers námskeiðs fengu aðilar afhentan
minnislykil merktan LS sem innhélt glærur og það sem námskeiðið hafði upp á að
bjóða.

 

Greint
er frá námskeiðunum og ýmsum fróðleik á heimasíðunni – alltummat.is – þar er
einnig að finna nöfn þeirra aðila sem sátu námskeiðin.

Blikkið hér