LS hafnar kvótafrumvarpinu

Landssamband smábátaeigenda hefur sent sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða (heildarlög). 
 
Umsögnin er byggð á umfjöllun stjórnar LS um frumvarpið þar sem samþykkt var eftirfarandi:
„Stjórn LS hafnar frumvarpi sjávarútvegsráðherra 
sem nú er til meðferðar í sjávarútvegsnefnd og leggur 
áherslu á að við meðferð nefndarinnar verði reynt að 
ná sátt við smábátaeigendur um breytingar sem gerðar 
verða á stjórnkerfi fiskveiða.  Stjórn LS lýsir sig 
reiðubúið að leggja sitt að mörkum svo friður geti
skapast um þetta mikilvæga málefni.