Þorvaldur Garðarsson á ÍNN

Í sumar hefur fv. sjávarútvegsráðherra Einar Kr. Guðfinnsson verið með viðtalsþætti á sjónvarpsstöðinni ÍNN.   Í þáttunum hefur verið leitast við að krifja málefni sjávarútvegsins og til þess hefur Einar fengið til sín góða gesti.  Þorvaldur Garðarsson formaður Árborgar og stjórnarmaður í Landssambandi smábátaeigenda var viðmælandi hans 11. ágúst sl.

Í viðtalinu kom Þorvaldur víða við – hvernig hann upplifði útgerð í aflamarkskerfinu og krókakerfinu, hvað væri að gerast á vettvangi smábátaútgerðarinnar, ástandið í hafinu og helstu fiskistofnunum, svo eitthvað sé nefnt.