Aðalfundur Smábátafélags Reykjavíkur

Smábátafélag Reykjavíkur boðar félagsmenn sína til aðalfundar miðvikudaginn 14. september.  Fundurinn verður í húsnæði félagsins  í Suðurbugt (Verbúð 5) og hefst kl 20:00.

Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna til fundarins og taka þátt í að móta afstöðu félagsins í hinum ýmsu málum.  Þar má nefna fyrirhugaðar breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, strandveiðar, grásleppumál ofl.

Alls lönduðu 95 bátar afla á árinu 2010 sem tilheyra félagsmönnum í Smábátafélagi Reykjavíkur, sem er fjölgun um tuttugu báta.

Formaður félagsins er Garðar Berg Guðjónsson.

Framkvæmdastjóri LS mætir á fundinn.