Þeir feðgar Ólafur Hallgrímsson og Hallgrímur Ingi á Borgarfirði Eystri gerðu feikna góðan róður í upphafi fiskveiðársins. Sóttu djúpt út í Héraðsflóann og lentu í afbragðs fiski. Þorskur, vel haldinn og fallegur ruddist inn í Eydísina. Þegar upp var staðið hafði hún landað 9,3 tonnum í tveimur löndunum. Afli á hvert bjóð var 310 kg.
Sjá fréttina í heild 8. september á aflafrettir.com