Krókur vill rýmri reglur um framsal

 
Aðalfundur Strandveiðifélagsins Króks var haldinn á Patreksfirði 17. september sl.  Fundurinn var ágætlega sóttur og fjölmörg mál krufinn til mergjar og ályktanir samþykktar.  Meðal þeirra voru eftirtaldar:
 
• Krókur telur að auka þurfi framsal a.m.k. til fyrra horfs þannig að fyllsta hagkvæmni          náist fyrir greinina.

 
 
• Krókur mótmælir framkomnu óafgreiddu frumvarpi um stjórn fiskveiða og telur það ekki vera leið til sátta.
 
 
• Krókur styður áður framkomnar tillögur sem samþykktar hafa verið um byggðakvóta (byggðaívilnun).
 
 
• Krókur krefst þess að úthlutuðum aflakvóta í öllum tegundum verði auknar um 15-20%.
 
 
• Krókur hafnar nýsettu ákvæði laga um að eigendur þurfi að vera lögskráðir á sínum strandveiðibát.
 
 
• Krókur styður heilshugar hvalveiðar.
 
 
• Krókur styður eindregið að grásleppuveiðar verði með sama hætt og verið hefur undangengi ár.
 
 
• Krókur krefst þess að meðafli af löngu og keilu megi vera allt að 10% af afla hverrar veiðiferðar og teljist ekki til kvóta.
 
 
Tryggvi Ársælsson var endurkjörinn formaður Strandveiðifélagsins Króks.

  
Aðrir í stjórn eru:  
Friðþjófur Jóhannsson gjaldkeri, Þorsteinn Ólafsson varaformaður.
 
Varamenn í stjórn eru:  
Davíð Bredesen 
Hafþór Jónsson.