Jóni þakkað lögfestingu strandveiða

Félag smábátaeigenda á Austurlandi var haldinn á Egilsstöðu 28. september sl.  Fundinn sóttu fjölmargir félagsmenn og voru umræður góðar og margar ályktanir samþykktar.  Þá lýsti fundurinn sérstöku þakklæti til Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fyrir hans framgöngu til lögfestingar strandveiða.
Meðal tillagna sem samþykktar voru:
 
  • Ekki verði kvikað frá núverandi svæðaskiptingu strandveiða.
  • Að sá afli sem ætlaður er til strandveiða verði utan heildaraflamarks þannig að ekki verði skerðing á kvóta annarra.
IMG_3799.jpg
  • Að snurvoðaveiðar verði bannaðar inni á fjörðum.
  • Að beitningarvélabátum verði óheimilaðar veiðar innan 3 sjómílna frá ystu annesjum.
  • Að gildruveiðar verði ekki heimilaðar inni á fjörðum.
  • Að komið verði á frjálsum handfæraveiðum. 
  • Mótmælt er banni við veiðum á lúðu.
  • Að afnema skuli heimildir til endurvigtunar/heimavigtunar
  • Mótmælt er öllum hugmyndum til breytinga á slægingarprósentu bolfiska í 10% úr 16% og aðgerðum stjórnvalda til að þvinga dagróðrabáta til að slægja afla um borð í óþökk  fiskkaupenda.
  • Þess er krafist að fjarskiptamálum verði komið í lag á grunnslóð fyrir Austurlandi og er þá átt við VHF, AIS og GSM samband.   Á grunnslóð, innan 3 sjómílna, er mjög stopult og víða alls ekkert fjarskiptasamband á svæðinu frá Glettinganesi suður fyrir Gerpi.
  • Krafist er að nú þegar verði aukið við aflaheimildir í þorski um 40 þúsund tonn (210 þúsund tonn)
  • Skylt verði að allir bátar séu tryggðir á sjó fyrir tjóni sem þeir velda þriðja aðila líkt og allir bílar eru tryggðir ábyrgðartryggingu í umferðinni. 

     Dæmi eru um að bátar fái haffæriskírteini en séu einungis með áhafnatryggingu. 

  • Veiðitími grásleppu verði óbreyttur 50 dagar
  • Óheimilt verði að veiða með trolli innan 12 sjómílna fyrir öllu Austurlandi
  • Að heimilt verði að róa með tólf fimmhundruð króka línur án þess að heimildir annarra skerðist, þar sem að lágmarki tveir séu í áhöfn.
  • Skorað er á 27. aðalfund LS að kjósa þriggja manna nefnd sem hafi það að markmiði að móta í samráði við stjórn og forystu LS tillögur að frjálsum handfæraveiðum, sem verði utan aflahlutdeildarkerfisins og skerði ekki aðra.
IMG_3808_2.jpeg
Formaður Félags smábátaeigenda á Austurlandi er Ólafur Hallgrímsson