Hrollaugur – makrílpottur til minni báta haldist óbreyttur

Aðalfundur Hrollaugs var haldinn 27. september sl.  Fundurinn var ágætlega sóttur og fjöldi spurninga sem vaknaði hjá Hornfirðingum.  Í umræðunni var m.a. komið inn á strandveiðar, línuívilnun, byggðakvóta, makrílveiðar og þrengingar á línuveiðar vegna reglugerðarlokana.
IMG_3786.jpg
Eftirfarandi vill Hrollaugur að rætt verði á aðalfundi LS:
  • Að línuívilun nái til allra dagróðrabáta og að LS beiti sér að krafti til að ná því fram.
  • Makrílveiðar.  Haldið verði fast í þann pott sem ætlaður er til makrílveiða minni báta. 
  • Geymsluréttur verði 20% í stað 15%.
  • Aðalfundur Hrollaugs mótmælir öllum reglugerðarhólfum fyrir línuveiðum út af Suðausturlandi. 

Greinargerð:   Reglugerðarhólfin eru út af smákeilu.  Leggjum við til að stærðarmörk á Keilu verði lækkuð, þannig að hægt sé að stunda línuveiðar frá Hornafirði með góðu móti.

 
Í lok fundar var kosið í stjórn Hrollaugs, hún er skipuð eftirtöldum: 
Arnar Þór Ragnarsson   formaður
Unnsteinn Þráinsson    gjaldkeri
Ívar Smári Reynisson    ritari