Farsæll vill aukingu veiðiheimilda í þorski, ýsu og ufsa nú þegar

Aðalfundur Farsæls, félags smábátaeigenda í Vestmannaeyjum var haldinn 3. október s.l. Að venju sköpuðust skemmtilegar umræður um þau mál sem uppi eru, bæði heima fyrir sem á landsvísu. 

Fundurinn samþykkti fjölda ályktana sem hann beindi til aðalfundar LS sem hefst hinn 13. október n.k. Meðal ályktana má nefna:
Að lokað verði fyrir snurvoð við suðurströndina út á 3 sjómílur og 3 sjómílur í kring um Vestmannaeyjar til verndunar sandsílastofninum og uppvexti fiskistofna,
að langa og keila verði meðafli krókabáta allt að 10% af heildarafla hvers róðurs á bátum undir 15 tonnum,
fundurinn mótmælir harðlega banni við veiðum á lúðu og þess í stað verði settar reglur um hámarksfjölda króka,
að aukning verði á þorsk, ýsu og ufsakvóta.
Það fór ekki milli mála hvert álit fundarmanna var á aðferðafræði Hafró við stofnstærðamælingar. Hún væri ekki upp á margar spyrður.
Jóel Andersen, formaður Farsæls til margra ára var einróma endurkjörinn.