Eins og frá var greint á þessum vettvangi 7. nóvember sl. óskaði Sjómannasamband Íslands eftir viðræðum við LS um gerð kjarasamnings fyrir sjómenn á smábátum.
Fyrsti fundur aðila var haldinn sl. miðvikudag. Fundurinn var á vinsamlegum nótum þar sem farið var yfir stöðuna.
Næsti fundur var ákveðinn 21. nóvember nk.
Í dag fjallaði RÚV um kjaraviðræður LS og SSÍ þar sem rætt var við Sævar Gunnarsson.