Frakkar kaupa mest af ferskum þorski

LS hefur tekið saman útflutning á ferskum þorski (flök, roðflettir beinlausir bitar og aðrir beinlausir bitar).  Það kemur á óvart að á fyrstu níu mánuðum ársins hefur mest verið flutt út til Frakklands.  Þeir hafa tekið við keflinu af Bretum sem hafa verið stórtækastir í kaupum á ferskum þorski héðan undanfarin ár. 
Útflutningur til Frakklands hefur aukist í magni til um 15% en dregist saman um 17% til Bretlands.  Þriðji stærsti kaupandi af ferskum þorski eru Belgar en þar stóð magnið í stað milli ára.
Alls hafa verið flutt út á tímabilinu níu þúsund tonn af ferskum þorski að verðmæti 13,1 milljarðs sem er aukning um 7% en magnið hefur dregist saman um 3% milli ára. 
Meðalverðið í ár er 11% hærra í krónum talið en í fyrra.
Þau þrjú lönd sem hér hafa verið nefnd eru með 91% magnsins sem er óbreytt hlutfall frá fyrra ári.    
Unnið upp úr gögnum frá Hagstofu Íslands