Kjaraviðræður – fleiri félög taka þátt

Kjaraviðræður LS og Sjómannasambandsins standa nú yfir.  Í lok þriðja fundar félaganna var ákveðið að óska eftir þátttöku fulltrúa Félags skipstjórnarmanna og Félags vélstjóra og málmtæknimanna.  
Félögin tóku vel í beiðnina og mæta til næsta fundar sem haldinn verður nk. miðvikudag 14. desember.