Í lok síðasta árs var fjallað um erindi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins til Hafrannsóknastofnunar um að stofnunin „skoði á nýjan leik grunn ráðgjafar sinnar hvað varðar ýsu.
Hafrannsóknastofnun hefur nú svarað ráðuneytinu. Við lestur bréfsins er nokkuð ljóst stofnunin hefur ekki kafað djúpt í grunn ráðgjafarinnar hvað þá að leita eftir þróun á aflabrögðum það sem af er fiskveiðiárinu. Er það miður þar sem milljarðar eru í húfi.
Athyglisverður er sá kafli bréfsins sem fjallar um upplifun sjómanna varðandi þróun á stærð ýsustofnsins.
„Afli ýsu á sóknareiningu, samkvæmt afladagbókum, hefur farið minnkandi á undanförnum árum. Vegna breytinga í útbreiðslu ýsu er þessi minnkun þó mismikil eftir svæðum. Verulega hefur dregið úr afla á sóknareiningu á Suður- og Austursvæði en á grunnslóð norðanlands hafa aflabrögð verið nokkuð óbreytt undanfarin ár. Þannig geta breytingar á útbreiðslu haft áhrif á upplifun sjómannsins eða tilfinningu hans fyrir stærð stofnsins á hverjum tíma, háð því hvað veiðarnar eru stundaðar. Varasamt getur því verið að draga ályktanir um heildarstofnstærð út frá staðbundnum breytingum á aflabrögðum..
Í niðurstöðu bréfsins segir: „Í ljósi framangreinds telur Hafrannsóknastofnunin ekki ástæðu til endurskoðunar á tillögunum um aflamark í ýsu fyrir fiskveiðiárið 2011/2012.