Þorrablót trillukarla í Reykjavík

Smábátafélag Reykjavíkur stendur fyrir Þorrablóti félagsmanna föstudaginn 27. febrúar n.k.  Blótið verður á veitingastaðnum Höfninni við Suðurbugt.pdf, mæting er kl. 7, en klukkutíma síðar er áætlað að setjast að krásunum. Verðið er kr. 5.900.- á mann.

Flest svæðisfélaga Landssambands smábátaeigenda voru stofnuð 1985 og mörg þeirra hafa haft þann sið að halda annað hvort árshátíð, Þorrablót eða, eins og í tilfelli eins þeirra, haft á því reglu að halda erlendis með reglulegu millibili.
Hér að neðan er auglýsingin sem stjórn félagsins sendi frá sér.
Screen Shot 2012-01-18 at 9.46.02 PM.png