Fiskistofa – rós í hnappagatið

Á ráðstefnu innanríkisráðuneytisins og Skýrslutæknifélagsins – „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? var tikynnt að Fiskistofa væri önnur tveggja stofnana hins opinbera sem bætt hefur vef sinn mest á sl. tveimur árum.  Þá er vefur Fiskistofu í hópi 5 bestu ríkisstofnana á Íslandi.  
Landssamband smábátaeigenda óskar Fiskistofu til hamingju með árangurinn.  
Rétt er að nota hér tækifærið og benda lesendum á forvitnilega slóð á vef Fiskistofu þar sem hægt er sjá fyrirspurnir til stofunnar og svör við þeim.