Skiptimarkaður Fiskistofu – 464 tonn af ýsu

Fiskistofa hefur auglýst skipti á aflamarki.  Í pottinum eru 15 tegundir.  Mestur hluti þeirra eru ýsa og steinbítur – alls 920 tonn.   
Tegundirnar eru boðnar í skiptum fyrir afla- eða krókaaflamark í þorski, ýsu, ufsa og/eða steinbít.
Frestur til að skila inn tilboðum er til kl 16:00 nk. fimmtudag 16. febrúar.
Eftir að búið er að fá síðuna yfir skiptingu tegunda fæst eyðublað með því að blikka á viðkomandi tegund.