Snæfell – félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi boðar félagsmenn sína til fundar á morgun fimmtudaginn 16. febrúar. Fundurinn verður haldinn í Sögumiðstöðinni Grundarfirði og hefst kl 20:00.
Dagskrá fundarins verður helguð kjaraviðræðum sem nú standa yfir milli LS og SSÍ, FFSÍ og VM um kaup og kjör á smábátum. Farið verður yfir stöðu viðræðnanna og hver næstu skref verða.
Mikilvægt er að félagsmenn fjölmenni til fundarins og viðri sín sjónarmið, sem er mikilvægur þáttur í gerð væntanlegs kjarasamnings.
Gestir fundarins verða:
Arthur Bogason formaður og Örn Pálsson framkvæmdastjóri.
Snæfell er stærst svæðisfélaga LS með 171 bát á félagaskrá sinni.
Félagssvæði Snæfells er Snæfellsnes til og með Borgarnes
Formaður Snæfells er Alexander Kristinsson