Meira veitt af rauðmaga og grásleppu

Nú styttist óðum í að grásleppuvertíðin hefjist.  Enn hefur enginn hafið veiðar en leyfilegt var að byrja á G-svæðinu 1. mars, við Reykjanes sunnan Garðskaga.  
Eins og komið hefur fram byrja veiðar á flestum svæðum 15. mars.
Eins og gengur eru grásleppukarlar farnir að spá í hvernig veiðin verður á vertíðinni.  Fjölmargar vísbendingar eru þar um sem flestar byggja á hvort vart hafi verið við hana á miðunum og hvernig rauðmagaveiðar hafa gengið.   Einnig eru til aðrar viðmiðanir sem taka mið af veðurfari og snjóalögum.  Hér skal vitnað til viðtals sem birtist í vikublaðinu Degi 16. maí 1983.  Þar er rætt við Húsvíkinginn Helga Héðinsson um grásleppuvertíðina.  „Þetta er annað árið í röð sem grásleppan bregst., sem dæmi um hversu veiðin var léleg segir Helgi að síðustu fimm dagar hefðu gefið 79 grásleppur í 17 net eða minna en eitt stykki í netið.   Í greininni er þess getið að þennan sunnudagsmorgun þegar viðtalið var tekið hafi jörð verið alhvít, þoka og súld.
Það sem af er fiksveiðiárinu hefur 11 tonnum verið landað af rauðmaga og 13 af grásleppu, en á sama tíma í fyrra voru tölurnar 6 af rauðmaga og 11 af grásleppu.