103 byrjaðir á grásleppu

Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu voru 103 bátar búnir að fá heimild til að hefja grásleppuveiðar í dag 19. mars.  Á morgun bætast svo 21 bátur við á D-svæðinu, frá Horni að Skagatá, en þá er er heimilt að hefja þar veiðar.