Aflaverðmæti íslenskra skipa 2011 varð 153,3 milljarðar (134 kr/kg) sem er rúmum 21 milljarði meira en á árinu 2010. Af því skiluðu Íslandsmið 137,9 milljörðum (125 kr/kg) og erlend mið 10% verðmætanna, 15,4 milljörðum (89 kr/kg).
Aflaverðmæti í úthafinu minnkaði lítilega eða um rúma þrjúhundruð milljónir, en verðmætaaukning á hvert veitt kíló jókst hins vegar mikið eða um 71%. 173 þús. tonn á síðasta ári skilaði því nánast sama aflaverðmæti og rúm þrjúhundruð þúsund tonn 2010.
Eins og fyrri ár er þorskurinn langverðmætasta tegundin með 43,2 milljarða (255 kr/kg), sem jafngildir 31,3% af heildaraflaverðmæti á Íslandsmiðum. Makríllinn var í öðru sæti með 18 milljarða (109 kr/kg) og karfi í þriðja sæti með 15 milljarða (264 kr/kg) í aflaverðmæti. Vægi botnfisks í heildaraflaverðmæti minnkaði mikið milli ára var 77% 2010, en á síðasta ári voru tveir þriðju verðmætanna botnfiskur.
Norsk íslenska síldin skilaði mestum verðmætum í úthafinu 8,8 milljörðum (70 kr/kg) sem er 57% heildarverðmæta þar, þorskurinn var næstur með 3,2 milljarða (253 kr/kg) og síld í þriðja sæti með 2,2 milljarða (110 kr/kg)
Unnið upp úr talnaefni Hagstofunnar