Fjölgar ört á strandveiðum

Alls 548 bátar fengið strandveiðileyfi og 455 hafa þegar hafið veiðar.  Tæpur helmingur þeirra – 220 – er við veiðar á svæði A.   
Að loknum fimm fyrstu dögum strandveiða er meðalafli á hvern bát hæstur á
svæði A 1.713 kg, 
svæði D 1.334 kg 
svæði C 1.037 kg
svæði B    951 kg
Á sama tíma höfðu 53% veiðiheimilda verið nýttar á svæði A, en á öðrum svæðum mun minna.  Viðmiðunarafli svæðisins ætti því að nýtast fram í næstu viku.